Beint í efni
Merki Stjörnugrís hf.

Stjörnugrís hf.

Um okkur


Upphafið að varanlegum svínabúskap fjölskyldunnar má rekja aftur til ársins 1935 þegar fyrstu gylturnar voru keyptar.

Stjörnugrís á skjánum

Nýjasta herferðin og svipmyndir frá Kótelettunni 2026.

Nýjasta herferðin

Álegg frá Stjörnugrís

Nýjasta herferðin

Pylsur frá Stjörnugrís

Fólkið og stemningin

Kótelettan 2026

Hópur við grillið í tjaldi Stjörnugríss á Kótelettunni

Saman á Kótelettunni

Stjörnugrís á Kótelettunni 2026.

Sagan okkar


Fjórar gyltur árið 1935

Upphafið að varanlegum svínabúskap fjölskyldunnar má rekja aftur til ársins 1935 þegar fyrstu gylturnar voru keyptar. Þær voru fjórar að tölu en eru nú 1.500, þegar þriðja kynslóðin er tekin við rekstrinum.

Eskihlíð, Lundur, Vallá

Þessi búskapur var upphaflega í Eskihlíð við Miklatorg (þar sem nú er Konukot) í rúm 25 ár en þá var búið flutt að Lundi í Kópavogi. Síðan liðu 30 ár og enn var búið flutt um set, nú að Vallá á Kjalarnesi.

Búin, sláturhúsið og kjötvinnslan

Stjörnugrís rekur einnig svínabú í Saltvík á Kjalarnesi, Melum í Melasveit, Sléttabóli á Skeiðum og að Bjarnastöðum í Grímsnesi. Lengi vel var öll slátrun keypt að en þar kom að, að hagkvæmara reyndist að hafa hana innan fyrirtækisins. Fullkomið sláturhús er nú í Saltvík og nýjasta viðbótin er kjötvinnsla, sem tók til starfa árið 2015. Þetta þýðir að kjötið er eins ferskt og framast má vera, beint í vinnslu og þaðan í dreifingu.

Beint frá bónda til borðs.

Búið í tölum

Fjórar tölur, allar úr sögunni hér að ofan.


  • 1935

    Árið sem búskapurinn hófst

    Gylturnar voru fjórar.

  • 1.500

    Gyltur í dag

    Þriðja kynslóðin er tekin við.

  • 4

    Saltvík, Melar, Sléttaból og Bjarnastaðir.

  • 2015

    Eigið sláturhús og kjötvinnsla

    Kjötvinnsla í Saltvík.

Fagmennskan


Hjá okkur starfa fagmenn í kjötiðnaði, þar á meðal landsliðsmenn.

Stefnurnar

Jafnlaunastefna og jafnréttisáætlun Stjörnugríss hf.


Jafnlaunavottun

Stjörnugrís hf. hefur innleitt jafnlaunakerfi skv. ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnlaunavottun sem nær til alls starfsfólks óháð starfsstöð með jafnlaunastefnu þessa sem grunn.

Leiðarljós

Við erum eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði kynja er virt í hvívetna og öll kyn hafa jöfn tækifæri til að nýta eigin atorku og þróa hæfileika sína.

Saltvík 1, 162 Reykjavík

Sími 531-3000 · kt. 600667-0179